Algengar spurningar
Sp.: Af hverju bætið þið ekki við regluafbrigðum, möguleika á að spila aftur eða einhverjum öðrum eiginleika? Það myndi gera leikinn miklu betri.
Sv.: Við fáum margar beiðnir frá fólki sem vill bara bæta einum litlum eiginleika við leik. Það sem fólk áttar sig ekki á er að ef við færum að innleiða allar tillögurnar sem okkur berast yrðu leikirnir ekki lengur einfaldir. Algengasta hrósið sem við fáum er að viðmótið sé einfalt og óreiðulaust og að auðvelt sé að spila. Það er alveg með ráðum gert. Hér er engin innskráning, engir hleðsluskjáir og eins fáir valkostir og mögulegt er. Við viljum hafa þetta eins einfalt og hægt er og það þýðir að hver leikur hefur aðeins eitt reglusett, þú getur ekki valið mismunandi útfærslur og við reynum að hafa eins fáa stjórnhnappa á skjánum og mögulegt er. Svo ekki láta þér líða illa ef þú kemur með tillögu og við höfnum henni; við höfnum 99% allra tillagna.
Sp.: Af hverju get ég ekki séð tölfræðina mína í annarri tölvu?
Sv.: Það sama á við hér vegna þess að við viljum hafa hlutina einfalda. Við viljum ekki neyða fólk til að skrá sig inn á síðuna. Við viljum ekki geyma lykilorð í gagnagrunni og bera ábyrgð á þeim. Tölfræðin þín er vistuð í vafranum þínum; við geymum hana hvergi. Það þýðir að um leið og þú skiptir um vafra sérðu ekki sömu tölfræði.
Sp.: Notar þessi síða vafrakökur og/eða fylgist hún með notendum?
Sv.: Já, þessi síða notar vafrakökur. Þær eru notaðar fyrir leiki, til dæmis til að muna stigin þín á milli umferða, en einnig til að safna saman almennum upplýsingum um vafra notenda, skjáupplausnir og fleira. Það hjálpar okkur að átta okkur á því hvað við þurfum að styðja. Að lokum eru þær einnig notaðar í auglýsingaskyni. Nánari lýsingu á notkun okkar á vafrakökum er að finna í persónuverndarstefnunni okkar og þú getur alltaf haft samband við okkur ef þú hefur áhyggjur af þessu.
Sp.: Svindla tölvustýrðu leikmennirnir? Eru leikirnir fyrirfram ákveðnir?
Sv.: Nei. Í öllum leikjunum eru spilin gefin af handahófi í upphafi og tölvustýrðu leikmennirnir taka ákvarðanir sínar eingöngu út frá þekkingu á eigin spilum og því sem þegar hefur verið spilað. Í grundvallaratriðum nota þeir sömu upplýsingar og mannlegur leikmaður hefði aðgang að.
Sp.: Ég sá móðgandi auglýsingu. Getið þið fjarlægt hana?
Sv.: Ef þú sérð auglýsingu sem móðgar þig skaltu endilega hafa samband við okkur og við reynum okkar besta til að loka á hana. Vegna þess hvernig auglýsingar virka getum við ekki alltaf fundið auglýsingarnar strax til að loka á þær, en ef þú sendir okkur skjáskot af henni, manst eftir einhverjum texta úr henni eða ert með slóðina eru mun meiri líkur á að við finnum hana og lokum á hana.
Sp.: Ég er með ótrúlega viðskiptatillögu handa ykkur!
Sv.: Takk fyrir áhugann. Þér er velkomið að senda hana til okkar, en hafðu í huga að við erum með fremur lokaða fyrirtækjamenningu og tökum ekki sérlega vel í óumbeðin viðskiptatilboð. Lestu þetta svar á síðunni með ítarlegri algengum spurningum áður en þú hefur samband við okkur.
Sp.: Ég er með spurningu sem ekki er svarað í þessum algengu spurningum!
Sv.: Tæknilega séð er þetta ekki spurning, en að því slepptu: þetta eru algengustu spurningarnar. Ef þú ert með fleiri spurningar sem við fáum oft í þjónustupóstinum okkar gætirðu fundið svar við þeim á þessari síðu, þar sem meðal annars er fjallað um merkingu grænu hakanna, hvort við munum bæta við tilteknum leikjum eða valkostum og fleira í þeim dúr.